Haha, jú það er nú rétt, ég þarf mun frekar að styrkja aðrar stöður, en ég fylgdist með þessum fara fyrir nokkrum dögum á 1,8 millur og ákvað bara svona að gamni mínu að bjóða aðeins í hann núna, og fékk hann á rúma millu sem verða að kallast góð kaup, þrátt fyrir að hann sé óttalegur launahákur. Ef hann verður of gráðugur, þá læt ég hann nú frekar fara heldur en að leyfa honum að draga mig í gjaldþrot en þá vonast ég nú til að græða aðeins á honum allavega.