BuzzerBeater Forums

Ísland - II.3 > nýtt season

nýtt season

Set priority
Show messages by
This Post:
00
136928.19 in reply to 136928.18
Date: 4/12/2010 1:24:06 PM
Overall Posts Rated:
3737
já satt og er það ekkert nema gott... þó að spjallið hérna hafi verið dauft erum við ennþá með mesta spjallið í okkar deild af öllum deildum á íslandi

This Post:
00
136928.20 in reply to 136928.19
Date: 4/12/2010 1:45:00 PM
Overall Posts Rated:
11
Hvað finnst mönnum um byrjunina á þessu tímabili?
Sýnist úr þessu að það verði MS, Klettarnir og Van Damme sem ætla að berjast um úrslitaleikinn sem ég ætlast að gera kaldur og segja að verði á móti mér eða castigador de rojo, mér sýnist The Deamons vera hálf inactive :S samt ekki alveg viss

From: Gizmo

This Post:
00
136928.21 in reply to 136928.20
Date: 4/12/2010 4:30:43 PM
Overall Posts Rated:
00
Ég myndi veðja á að Team Masabas komist í úrslitaleikinn úr Great 8, veit ekki með hina deildina.

This Post:
00
136928.22 in reply to 136928.21
Date: 4/12/2010 5:19:36 PM
Overall Posts Rated:
3737
já það er rétt hjá ykkur team masabas eru líklega sterkastir ykkar megin og demons virðast vera eitthvað ekki alveg áhugasamir

varðandi okkar deild þá er allt galopið nú síðast var team van damme að vinna klettana sem hafa átt þennan riðil síðustu season þó ég hafi verið farinn að ógna þeim verulega síðasta season en gaman að fá team van damme í þessa baráttu en eins og ég segi allt gal opið og ég ætla ekki að vera með neinar yfirlýsingar þó að ég vilji auðvitað fara í finals á móti masabas

This Post:
00
136928.23 in reply to 136928.22
Date: 4/13/2010 7:50:14 PM
Overall Posts Rated:
11
Gaman að sjá að það er ennþá eitthvað spjall hér. Góðar minningar af þessu spjalli og þó það fari jafnvel illa í landan þá vona ég að ég komi ekki aftur á þetta spjall, heldur vona ég að þið active-u liðin komið á spjallið í efstu deild. Drífið þessa deild af og komist nokkrir upp :)

Hvað er að frétta af Team Van Damme? Ég bara spyr! :)

This Post:
00
136928.24 in reply to 136928.23
Date: 4/14/2010 5:43:21 PM
Overall Posts Rated:
11
mðaur veikist í nokkra daga og allt fer á hvolf

ég veit ekki alveg hvað gerðist í þessum leik en ég óska team van damme til hamingju með góðan sigur

já þetta spjall er(var) búið að vera svolítið dautt en allt þetta spjall um landsliðið er skemmtilegt og ég allavegana er búin að reyna að fylgjast með landsliðunum

en hvernig finnst mönnum nýji u21 þjálfarinn? mér finnst hann vera frábær því hann er að hjálpa öllum í sambandi við game shape og fleira

hinn heilbrigði, erpur

This Post:
00
136928.25 in reply to 136928.24
Date: 4/14/2010 6:29:32 PM
Overall Posts Rated:
3737
velkominn aftur

ég er mjög sáttur með u21 þjálfarann.. varðandi gameshapeið þá er það eitthvað sem ég áttaði mig fljótlega á að skipti töluverðu máli og hef lagt kapp á að hafa það í sem bestum farveg hjá mínum mönnum(þó að þessi vika verði smá undantekning)

annars skilaði ég þessum sigri sem ég vildi á team van damme og vonast eftir sigra í bikarkeppninni þó að zvalgas sé mun hærra skrifaðari en ég sjálfur

This Post:
00
136928.26 in reply to 136928.25
Date: 4/15/2010 5:22:46 PM
Overall Posts Rated:
44
Hvað er að frétta af Van Damme? Liðið er augljóslega jafn ofursvalt og hetjan sem það er skýrt eftir og eins og Klettarnir fengu að finna fyrir þá kann Van Damme að lemja frá sér. Tap reyndar gegn Höfðingja en liðið er ungt og mun bara batna. Svo er bara stefnan sett á 16-18 sigra á tímabilinu, gera sitt besta í úrslitakeppninni og svo vinn ég þessa deild á næsta tímabili.

Van Damme er að öðru leiti ekki sáttur í kvöld með að KR hafi tapað gegn Snæfelli.

This Post:
00
136928.27 in reply to 136928.26
Date: 4/15/2010 5:33:52 PM
Overall Posts Rated:
3737
Bubbi minn mjög góður leikur hjá snæfell...annars verður næsta ár ekkert gefið fyrir þig

This Post:
00
136928.28 in reply to 136928.27
Date: 4/15/2010 6:15:46 PM
Overall Posts Rated:
11
Mig langar rosalega að reyna að gerast fyndni gæinn eins og maðurinn sem skrifar aftan á öll Andrésar Andar blöðin og segja ,,Bubbi, nenniru að schegja henni Brynju það að þú bremschir hana" eeen ég ætla að láta það eiga sig og þið látið eins og þið hafið ekki séð þann brandara ;)

Annars langaði mig að óska þeim til hamingju sem enn eru í bikarnum, en ég er einmitt að fara að keppa á móti Castigador De Rojo. Hlakka mikið til þess að skoða hvort styrkleikinn hafi eitthvað breyst, en eins og hugsanlega einhverjir muna þá vorum við Rivals í 2. deildinni :)

Klettarnir hafa harm að hefna gegn Van Damme, hugsa að það verði mjög skemmtilegur leikur hjá þeim í bikarnum. Hvernig er það Erpur? Til í leikinn? Sigur í Höfn? Bubbi? Hvað er að frétta?

Höfðingi leiðir lið MS#1 gegn Claud Team. Nærðu að berja á þeim? Þeir eru alveg með nokkuð góða stóra menn :) Hef trú á þér!

Tommi, hvernig er það með Masabas? Ertu ekki að fara að sigla hljóðlega í gegnum Dark Viking? Ég yrði hissa á öðru!

This Post:
00
136928.29 in reply to 136928.28
Date: 4/15/2010 6:49:16 PM
Overall Posts Rated:
3737
þetta verður bara gaman...sjá styrkleikamuninn á efstu deild fyrir mig

hvað varðar úrslitin í kvöld þá er ég mjög ánægður...rústaði zvalgas í fráköstum og hélt þeim alveg niðri með 2-3 svæðisvörninni minn og stóru mennirnir hans veru ekki að gera jafn mikið og þeir hafa fengið að gera

með þessum úrslitum vil ég eiginlega meina að okkar deild hafi sannað sig sem ein sterkasta 2 deildin á landinu...ég vinn þarna besta liðið í 1 riðli í 2 deild og þeir settu meira í leikinn en ég gerði :) og svo eru líka allir sem eru að sinna þessu ennþá með sitt lið inní keppninni sem er mjög sterkt og er ég sáttur með það hjá okkur öllum

Advertisement