kæru vinir, úrslitakeppnin hefst í kvöld, einvíg Claud team og Mumbai Maestro ríkjandi íslands- og bikarmeistara. Hér verður hart barist, MM er svona risaeðlan í þessu einvígi, kallar sem kunna þetta og hafa unnið nokkra bikara á ferlinum en Claud hefur hingað til verið meira Bayern Leverkusen en vilja væntanlega reka af sér það slyðruorð. Claud hefur heimaleikjaréttinn sem hjálpar auk þess sem þeir eru með fleiri dýra leikmenn en MM. Ég stefni samt ótrauður á sigur, lengi lifi Mumbai Maestro.