Skemmtileg lesning, það máttu eiga. Gaf þér bolta fyrir þennan pistil, menn mættu alveg vera duglegri við það að gefa bolta ef mönnum líkar við lesninguna. Bæði hvetur það pistilhöfund til að halda áfram og jafnframt koma kannski fleiri pennar framm með sín skrif.
Ég vil einnig þakka fyrir þá athygli sem þú sýnir liði mínu. Það má segja að ég hafi umturnað liðinu mínu og er síðasti leikmaðurinn sem ég mun og vil selja á sölulista núna. þá mun ég bara eiga eftir einn erlendan leikmann sem ég mun halda í liðinu svo lengi sem aldur hans leyfir. Hann Mack mun vera minn "bosman" leikmaður.
Mér líður alveg rosalega vel með þennan íslendinga her minn eins og andrip kallar liðið mitt, og er ég þakklátur fyrir að hafa haft tök á því að fá þessa leikmenn til mín. Í framtíðinni mun ég halda áfram að styrkja liðið mitt með íslendingum í takt við það að þjálfa íslendinga líka. Ég tel mig vera með 3 gæða leikmenn í þjálfun en mögulega þyrfti ég að skipta einum leikmanni út þar sem tveir munu enda í sömu stöðu. Þess vegna hefur mér dottið í hug og sú hugmynd fengið byr undir báða vængi þegar ég las þennan pistil, að skipta á leikmönnum. Þar sem það eru örugglega fleiri íslendingar sem vilja að liðin sín sé skipuð íslendingum og því væri hægt að "trade-a" leikmönnum sín á milli. En auðvitað geta alltaf komið utan aðkomandi stjórar og reynt að kaupa þennan leikmann og getur það gert okkur erfiðara fyrir vik. En þó held ég að menn séu til að borga 100þús kall meira fyrir íslending en samskonar útlending þannig að það verður ekkert stórvægilegt vandamál. Það sem mun vera vandamál er að fá íslensku stjórana til að samþykkja að selja leikmanninn sinn. Ég veit það að ég mun ekki selja hvern sem er frá mér. Þó hvet ég alla þá sem hafa áhuga á íslenskum leikmönnum að hafa samband við þann stjóra og fá að vita meira um leikmanninn og hvort möguleiki sé á sölu eða jafnvel skiptum ef menn hafa leikmenn til að skipta.