Ég er alltaf hérna líka, en hef fyrir löngu gefist upp á að reyna að búa til umræður. Ég lifi bara í þeirri von að með haustinu færist meira líf í forumið. En þó, ef einhver hefur umræður hérna, þá lofa ég að taka þátt í þeim.
Ég kaus nú bara sjálfan mig í þessari könnun, þótt ég haldi nú kannski ekkert endilega að ég muni standa uppi sem sigurvegari. í undanúrslitunum vann Claud mig samt svo skrambi tæpt, í OT, og vann svo deildina, svo að ég gæti alveg átt möguleika í þetta, þ.e. ef ég gef ekki góðan slatta af leikjum til að ná betri árangri í cup.
Þegar ég spila mínum bestu mönnum er ég nú bara með einkar öflugt lið þó ég segi sjálfur frá. Svo er nú vonin að ég geti jafnvel bætt eins og einum leikmanni í hópinn á þessu tímabili og þar með búið til breidd í mínu liði sem hefur aldrei verið til staðar.
Jæja, þetta var þó eitthvað, endilega komið með ykkar spekúleringar um leikmannakaup og annað.