Switch
Komið að næsta skrefi
Posted on 12/27/2013
Fyrir 8 tímabilum síðan hófst markviss enduruppbygging hjá Skyttunum sem einkenndist af markvissum skrefum og þolinmæði. Þetta kostaði félagið fall í 2 deild sem félagið var í í tvö tímabil. Mörg mikilvæg skref hafa verið tekin og þrátt fyrir það hefur félagið náð í undanúrslit frá þeim tíma sem að liðin komst aftur í 1 deild.
Núna er komið að næstu skrefum. Félagið er komið í hóp þriggja bestu liða landsins en nú verður farið að mjaka sér á næsta stig. Það mun taka tíma og smá fórnir en stórt skref að þessu var stigið með kaupum á Bosnískum landsliðsmanni. Stefnan er áfram sú að íslendingar verði í forgrunni en nauðsynlegt verður að hafa einhverja útlendinga.